22.9.2009 | 14:12
Á nýjum tímum fær samræðan aukið vægi
"Við vorum að ræða málin og þá kviknaði þessi hugmynd". Þannig segir fólk oft frá byrjun á einhverju nýju, hugmyndum, nýsköpun, lausnum og góðverkum. Á nýjum tímum mun samræðan verða þungamiðjan í hinu virka lýðræði. Þannig munum við vaxa uppúr átakastjórnmálunum og líta svo á að viðfangsefni stjórnmálanna sé að leita sameiginlegra lausna þar sem hin ólíku sjónarmið og hagsmunir koma fram. Lítum bara á hversu gagnlegt það hefur verið í umræðunni í þjóðfélaginu að undanförnu að fá að heyra viðtöl við marga og ólíka hagfræðinga í fjölmiðlum. Einmitt vegna þess að þeir hafa ólíka sýn á hlutina, verður sýnin í heild breiðari.
Enda segir Margaret Wheatley "Samræða er leið okkar mannanna til að hugsa saman".
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.