15.9.2009 | 09:36
Á nýjum tímum: Fyrir fólkið eða kerfin?
Er það ekki undarleg þversögn að þegar sparað er í einu kerfi (í þessu tilfelli heilbrigðiskerfinu) þá vex kostnaðurinn í öðru kerfi (Atvinnuleysistryggingasjóður), en þjónustan versnar, atvinnulaust fólk vantar viðfangsefni og farveg fyrir hæfileika sína og kunnáttu og það verður verri staða í þjóðfélaginu almennt? Ætti ekki að vera hægt að hugsa þetta upp á nýtt? Kannski er þetta einmitt gott dæmi um kerfi/hugsun/lausnir sem eru úr sér gengin og þurfa að breytast á nýjum tímum. Ættum við ekki að vera að leita skapandi lausna þar sem fólk er þungamiðjan en ekki kerfin sem slík?
Hefur áhyggjur af stöðunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.