22.10.2008 | 17:31
Samræða er leiðin
Það er eins og þjóðin öll haldi niðri í sér andanum þessa dagana. Óvissan er algjör og þau viðmið sem við höfum haft í lífinu til þessa (nema kannski helst elsta kynslóðin) eru hrunin. Það eru fleiri kerfi en fjármálakerfið sem er í sjokki, sjálf þjóðarsálin er í sjokki.
Við erum að fara í gegnum stórar breytingar og eitt af því sem staðan og lífið er að krefja okkur um er að tala saman. Í gegnum samræðuna getum við notið stuðnings, gefið og þegið. Í gegnum samræðuna getum við leitað nýrra leiða. Í gegnum samræðuna getum við skapað nýja framtíðarsýn. Ég hvet alla til að hóa fólki saman til samræðu. Samræðan er leið okkar mannanna til að hugsa og skapa saman. Byrja bara á þeim sem næstir eru. Ekki láta eins og ekkert hafi í skorist.
Vinnufélagar, stjórnendur og starfsfólk, sveitarstjórnir og íbúar, stofnanir og hagsmunaaðilar. Það er sama hvort við hugsum það þröngt eða vítt - við komumst ekki áfram án þess að tala saman. Ég er sannfærð um að nú sé að hefjast nýtt þroskastig lýðræðisins!
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Fyrirgefðu Sigurborg en fyrirsögnin dró mig að pistlinum þínum, mér sýnidst vera i þarna í enda fyrsta orðsins en ekki a ........vekomin á bloggið og kveðja í Grundarfjörð.
Haraldur Bjarnason, 22.10.2008 kl. 17:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.